Nr. | Æfingar | Gildi | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Fara með beinar fætur í gegnum samloku og stoppa í öfugri höngu | 0,5 | Loka líkama í samloku, höfuð snertir hné í samloku Kúpt, bein eða fött staða leyfileg í öfugri höngu Stoppa í 2 sek í öfugri höngu |
2 | Síga hægt í axlateygju í gegnum samloku – stoppa í axlateygju | 0,5 | Hendur, axlir, mjaðmir og fætur í beinni línu í axlateygju. Stoppa í 2 sek í axlateygju |
3 | Síga niður að framan, halda vinkli með beinar fætur | 1,0 | Stoppa í 2 sek |
4 | Halda vinkli með bognar fætur | 0,5 | Stoppa í 2 sek |
5 | Sveifla aftur, sveifla fram | 0,5 | Sveifla aftur beint úr vinklinum, Axlir opnast ekki meira en 90° í framsveiflu og hringir snúa inn, mjaðmir í höfuðhæð |
6 | Sveifla aftur, sveifla fram | 0,5 | Axlir opnast ekki meira en 90° í framsveiflu og hringir snúa inn, mjaðmir í hringjahæð |
7 | Sveifla aftur, sveifla fram | 0,5 | Axlir opnast ekki meira en 90° í framsveiflu og hringir snúa inn, mjaðmir í hringjahæð |
8 | Sveifla aftur, afturábak Heljarstökk samanbogið | 1,0 | Sleppt á hvolfi, ekki í höngu |
Samtals | 5,0 |
Leyft að keppa á lágum hringjum eða nota þykkar lendingardýnur.