Drengjareglur

Fylgja skal unglingareglum FIG (junior rules) The Code Of Points (COP) með eftirfarandi breytingum.

Fjöldi æfinga

Veittur er D bónus fyrir að framkvæma áttundu æfinguna í seríunni. Sett inn sem 0,5 tengibónus í skor kerfinu.

Netural deduction fyrir fjölda taldra æfinga er svipað og í COP, nema 5 æfingar sleppa við frádrátt og frádrátturinn er einum lægri en í COP

Fjöldi taldra æfingaNeutral deductionE-einkunn
8010,0
7010,0
6010,0
5010,0
43,07,0
34,06,0
25,05,0
16,04,0
010,00,0

Afstökk samkvæmt FIG COP unglingareglur, fær gildið á mómentinu

Æfing sem endar án afstökks = Mest 7 æfingar sem telja til D-einkunnar

Sérstakar reglur fyrir hvert áhald

Hvert áhald er samkvæmt COP unglingareglum, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Aukaöryggisdýnur leyfðar án frádráttar þar sem þarf í þrepunum

Leyfilegt er að nota hækkun til að komast upp á bogahestinn.

Stökkhestur má vera minnst 125 cm og mest 135 cm að hæð.

Þegar keppt er til úrslita á stökki þarf að framkvæma tvö mismunandi stökk skv. reglum COP.