Nr. | Æfingar | Gildi | Lýsing |
---|---|---|---|
1 | Hendur upp, til hliðar, hopp 1/1 skrúfa | 0,5 | |
2 | Fótspark – Fótspark – Handstaða | 0,5 | Bæði spörk ná yfir 90° stopp í handstöðu í 2 sek |
3 | Kollhnís – upphopp | 0,5 | Hendur snerta ekki gólf þegar staðið er upp líkami er beinn í loftinu í upphoppi Lent með fætur saman 0,3 fyrir að sleppa upphoppi |
4 | Jafnvægi með fót upp 90° fram og hendur sundur | 0,5 | 2 sek |
5 | Handahlaup – stoppa á hlið – Handahlaup – stoppa í 90° snúning | 0,5 | Farið beint í handahlaupið úr jafnvæginu Klára seinna handahlaupið með fætur saman |
6 | Afturábak kollhnís í stuðning – Hopp í sundur fætur stöðu | 0,5 | Armbeygjustaða, halda kúlu á brjósti Með hendur í jörðu |
7 | Pressa í höfuðstöðu Kollhnís – uppstökk með hné að brjósti | 0,5 | Halda höfuðstöðu í 2 sekúndur Kollhnís úr höfuðstöðu Lending er undirbúin og með fætur saman |
8 | Hlaupa Arabahandahlaup | 0,5 | Almennileg hröðun í hlaupi Einn fótur niður, annar fótur niður og endað með fætur saman |
Samtals | 4,0 |
Æfing er gerð í línu fram og til baka. Breytt um stefnu eftir uppstökk með hné að brjósti
Ekki tekinn línufrádráttur, svo að hægt sé að keppa á renning eða hliðarlínu