Ágrip

Árið 1985 var byrjað að keppa í hinum íslenska fimleikastiga en árin á undan var keppt í norska fimleikastiganum sem skipt var upp í 12 þrep.

Íslenski fimleikastiginn tók upphaflega mið af alþjóðlegum skylduæfingum en árið 1996 voru þær skylduæfingar lagðar niður. Tækninefndir karla FSÍ, sem að öllu jöfnu bera ábyrgð á hönnun stigans, hafa því síðan þá miðað þrep hins íslenska fimleikastiga við þróun fimleika bæði á landsvísu og á alþjóðavettvangi. Íslenski fimleikastiginn var upphaflega í fjórum þrepum. Það fjórða var léttast og það fyrsta erfiðast. Lengi vel var aðeins keppt í þriðja og fjórða þrepi stigans en þróun stigans og fjölgun iðkenda í fimleikum karla hefur gert það að verkum að síðustu árin hefur verið keppt í öllum þrepum stigans sem í dag eru orðin formlega 5 talsins og þar að auki er 6.þrep fyrir byrjendur með í stiganum.

Árið 2007 var í fyrsta sinn keppt í 5. þrepi stigans á móti á vegum Fimleikasambands Íslands (FSÍ). Keppni í 5. þrepi karla hefur nú fest sig í sessi á þrepamótum FSÍ. 6.þrep er ekki formlegt þrep á mótum FSÍ, en er góður grunnur áður en keppendur keppa í 5.þrepi og er hugsað fyrir hina reynsluminni byrjendur í fimleikum og virkar sem góður mælikvarði á byrjendagetu í fimleikum. Það þrep er hentugt fyrir aldurshópinn 5-9 ára og nýtist aðildarfélögum FSÍ á millifélagamótum og innanfélagsmótum. Hugmyndin um að keppa í 6.þrepi á FSÍ mótum verður vonandi útfærð í næstu útgáfu af fimleikastiganum.

Nýr íslenskur fimleikastigi karla er nú gefinn út í níunda sinn. Innihald og samsetningar æfinganna hafa tekið nokkrum breytingum frá fyrri fimleikastiga (2017 – 2021) en dómarareglur haldast að mestu óbreyttar. Hætt verður með bónuskerfið, en í staðinn verða 2 eða fleiri æfingar með hærra gildi en hinar æfingarnar. Vægi gömlu bónusæfingarinnar verður því lægra, og minni refsing fyrir að sleppa henni. Engar bónusæfingar eru í 6. þrepi.

Meðlimir í Tækninefnd karla FSÍ 2023 – 2024 þeir Sigurður Hrafn Pétursson formaður, Daði Snær Pálsson og Hróbjartur Pálmar Hilmarsson sáu um vinnslu Íslenska fimleikastigans 2025 – 2028. Nefndin sendi út könnun á gamla stiganum, bjó til drög og hélt tvo kynningarfundi um drögin í XYZ 2024 þar sem þjálfarar og dómarar komu með góðar uppástungur og breytingatillögur. Nefndin þakkar fyrir allar ábendingar sem henni bárust varðandi æfingaval og samsetningar æfinga á áhöldum. Með þessum æfingum er ætlunin að vinna áfram náið með þjálfurum og kunnáttumönnum í áhaldafimleikum karla á Íslandi.

Nefndin óskar keppendum, þjálfurum og dómurum góðs gengis á komandi þrepamótum FSÍ og áhorfendum góðrar skemmtunar.

Varðandi keppni í íslenska fimleikastiganum

  1. Fimleikastiginn er gerður til 4. ára í senn og fylgir breytingum á reglum FIG
  2. Keppandi fær þrep viðurkennt þegar ákveðnum stigafjölda í fjölþraut er náð. Með því að fá þrep viðurkennt hefur keppandi formlega
    lokið þrepinu. Ber honum þá að færast upp um þrep á næsta keppnistímabili.
    • Einungis er hægt að fá þrep viðurkennt með stigum í fjölþraut á mótum á vegum FSÍ. Þau mót eru:
      Haustmót, Þrepamót, Bikarmót og Íslandsmót í þrepum.
    • Stigafjöldi í fjölþraut til þess að öðlast viðurkenningu á þrepi fer eftir Kröfum móta sem TK sendir út á ári hverju. Gefið er út að
      vori ár hvert hverjir hafa náð þrepinu.
    • Við 18 ára aldur hefja menn keppni eftir fullorðins reglum FIG og keppa því ekki lengur í Íslenska fimleikastiganum.
  3. Keppanda er leyfilegt að færa sig upp um þrep á keppnistímabili hafi hann sýnt fram á nægilega góð tök á því þrepi sem hann ætlar að
    fara úr. Ekki er hægt að færast niður um þrep þegar keppandi hefur einu sinni fært sig upp um þrep og keppt í því á móti á vegum FSÍ.
  4. Keppendur 12 til 18 ára eiga þess kost að keppa í frjálsum æfingum samhliða keppni þrepunum til 18 ára aldurs. Reglur FIG í keppni
    unglinga hafa opnað þennan möguleika fyrir keppendum í þrepunum en reglurnar eiga við um keppendur á aldrinum 14 – 18 ára en þær
    eru líka notaðar í keppni í frjálsum æfingum á aldursbilinu 12 – 14 ára, með nokkrum undanþágum
  5. Þátttökuréttur á Íslandsmóti í þrepum fer eftir Kröfum móta sem TK sendir út á ári hverju.
  6. Þjálfarar og dómarar bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér innihald fimleikastigans og þær breytingar sem kunna að verða á framkvæmd
    þrepa og dómgæslu þeirra. Þjálfarar skulu mæta undirbúnir í stiganum á hvert mót og bera sjálfir ábyrgð á framkvæmd keppenda sinna.
    Þjálfarar geta komið kvörtunum á framfæri við yfirdómara mótsins eftir framkvæmd keppenda síns áður en næsta umferð hefst.
  7. TK áskilur sér rétt til breytinga á stiganum ef þörf þykir. Allar breytingar sem gerðar eru á fimleikastiganum eru sendar til aðildarfélaga
    FSÍ með tölvupósti og er meginreglan sú að breytingar verði aðeins gerðar eftir lok hvers keppnistímabils.